Joma er með höfuðstöðvar og verksmiðju í Målskog rétt utan við Gnosjö, framsækið svæði með öflugt viðskiptalíf sem einkennist helst af frumkvöðlastarfi og nýsköpun. Öll þróun og framleiðsla fer fram í hinni 17.000 m2 stóru, nútímalegu og að mestu sjálfvirku verksmiðju í miðju Gnosjösvæðinu. Joma hefur til margra ára verið leiðandi á Evrópumarkaði með sína framleiðslu á festingum.
Varberg Timber
Fyrirtækið er ein stærsta timburvinnsla Svíþjóðar og framleiðir allt frá þiljum, panel, gólfefnum til burðarvirkis og gagnvörðu timbri. Fyrirtækið er með eina nútímalegustu gegndreypingaraðstöðu Evrópu með 150.000 m3 afkastagetu. Fullkomlega sjálfvirk aðstaða sem gengur allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. Hráefnið í afurðir þeirra er allt upprunamerkt í Svíþjóð og því hægt að tryggja gæði og afhendingaráreiðanleika hvað eftir annað.
VSByggskruv
Västsvensk Byggskruv AB er eitt af leiðandi vörumerkjum fyrir skrúfur í Svíþjóð. Markmið VSB er að veita vörur í hæsta gæðaflokki á markaðnum með mikilli stundvísi hvað afhendingu varðar. Þeir vinna stöðugt að vöruþróun og gæðaeftirfylgni með tímaminnkandi sem og vinnu sparandi nýjungum að markmiði. Tölfræðileg gögn staðfesta það gjarnan. Árið 2023 barst fyrirtækinu ekki ein einusta kvörtun vegna vöru, ekki ein einasta.