Search
X
  • No products in the list

Terms and conditions

SKILMÁLAR
Almennir ábyrgðarskilmálar
Allar vörur eru seldar með fullri ábyrgð samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003.
Ábyrgð miðast við dagsetningu kaupnótu.
Kaupnóta er nauðsynleg þegar staðfesta þarf ábyrgð.
Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits.
Ábyrgðin fellur úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.
Viðskiptaskilmálar
Varan er eign XXX þar til kaupverð hefur verið að fullu greitt.
Raðgreiðslusamningar, reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt XXX fyrr en
fullnaðargreiðsla hefur verið innt af hendi.
Gjalddagi reiknings vegna reikningsviðskipta er X. dag mánaðar.
Eindagi reiknings er XX. dag mánaðar.
Dráttarvextir reiknast eftir eindaga frá og með gjalddaga reiknings.
Skilaréttur
Skilaréttur vöru er allt að 30 dagar gegn framvísun reiknings.
Athugið að útsöluvörum er ekki hægt að skila eða skipta.
Vara er eign XXXX uns hún hefur verið að fullu greidd.
XXXX áskilur sér rétt til að taka 20% afföll af upphaflegu verði þegar vörum er skilað.
Við vöruskil er útgefin inneignarnóta sem gildir í öllum verslunum XXXX í 1 ár frá útgáfudegi. Óski
viðskiptavinur eftir því að fá frekar endurgreiðslu þá verður endurgreiðsla framkvæmd á sama formi
og upphafleg greiðsla viðskiptavinar var framkvæmd á.

Ekki er hægt að skila ljósaperum eða niðurmældri vöru.
Ekki er hægt að skila sérpöntunarvöru.

Viðskiptaskilmálar vefverslunar XXX
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu XXX til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Skilmálinn og aðrar upplýsingar á www.xxx.is eru einungis fáanlegar á íslensku.

Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um
rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga.
Seljandi er XXX , blablavegi 2, 111 Kópakser, kennitala: 000000-0000, virðisaukaskattsnúmer 00000
blabla ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.
Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.xxx.is

Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest
pöntun í skrefi. 3. Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í
samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða
þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum
samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð
netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar
hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Frávik frá
pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka
eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í
samræmi við það sem seljandi bauð upp á.
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar
með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt
til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum
fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær
þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð eru stöðugt að breytast hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir
sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar
pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en
kaupandi staðfestir pöntun endanlega(skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við
pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir
pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í
texta, verðum og myndum.
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Ef greitt er með
greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki,
áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar
á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki
innan þess tíma er pöntun aflýst.

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu
hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef
afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin
verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar pantanir yfir kr.
20.000 krefst undirskriftar reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða
ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað. Ef að enginn er við er
pöntun stungið inn um bréfalúgu ef kostur er. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á
þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á
ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum

afhendingartíma. Ef að afhending reynist árangurslaus í annað skiptið er vara tekin í geymslu þar til
hún er sótt. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur XXXX sér rétt til að rifta kaupum. Ef
aðstæður krefjast þess að varan sé geymd er krafist mánaðarlegs geymslugjalds sem nemur um 5%
af upphæð vörunnar.

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við
pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt
vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér
leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími
viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna
staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í
flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð,
nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan
30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um
gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur til að fá
galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan
meðallíftíma umfram 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan
eðlilegra tímamarka.